Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

sunnudagur, mars 26, 2006

* Töff Töff Töff*

Var að horfa á myndbandið með Silvíu Nótt og ég segi bara *töff töff töff*
Vona svo innilega að hún komist í aðal keppnina!!! Hvað er Eurovision án Silvíu Nightar = ekkert spes ;)

En svona fyrir ykkur "baking mamas" þá ætla ég að setja inn uppskriftina af "france sjokolade" kökunni hérna:

200 gr. súkkulaði
brætt í potti
200 gr. smjörlíki


2 dl. sykur
2 1/2 dl. hveiti
hrært saman
1 tsk. lyftiduft
4 egg

Þessu síðan blandað saman og sett í ofn við 200° í 20 mín..

..og það er síðan bara must að vera með þeyttan rjóma með kökkunni og síðan voða sætt að skreyta með jarðaberjum :)

Helgin var annars mjög róleg.. Veigar fór til Svíþjóðar eldsnemma á laugardagsmorguninn og var kominn heim klukkan 6 sama daga. Ég og Viktor vorum bara heima að leika okkur saman :)

Það fer að styttast í mömmu, pabba, Bibbu og Önnu.. aðeins tvær vikur í þau :) Mig hlakkar ekkert smá til *stórt bros*
Það verður sko gert alveg helling með þeim hérna. Þau ætla að vera með bílaleigubíl í 3 daga og þá verður keyrt um og skoðað og við erum jafnvel að spá í að skella okkur til Svíþjóðar og versla í matinn. En það verður pottþétt rosa gaman hjá okkur :)

Veigar fer í sumarfrí 9. júní og við erum að spá í hvað við ætlum að gera.. okkur langar heim en okkur langar líka ekkert smá mikið til Kanaríeyja. Við erum svona á báðum áttum, það er nefnilega mjög dýrt flugið heim til Íslands.. Það munar ekki miklu að fara til Kanaríeyja í viku með hóteli og fara heim til Íslands, reyndar í 10 daga. En við þurfum að ákveða þetta fljótlega svo að verðið hækki ekki meira!!!

Over&Out

miðvikudagur, mars 22, 2006

Ammæli-ammæli

Veigar "bastastur" átti afmæli í gær þessi elska :) Hann fékk alveg fullt af knúsi og kossum frá okkur Viktori ;)

Það er annars allt og ekkert að gerast þessa dagana.. Veigar er alveg á fullu að æfa, tímabilið byrjar 9. apríl. Ég er bara heima með Viktor á daginn, förum reyndar alltaf í göngutúr á daginn. Snjórinn er að bráðna, sem betur fer og ég er búin að ákveða það að þegar ég get farið að leggja bílnum í stæði þá fer ég að byrja að æfa aftur :) Það er bara búið að vera bíla-problem hérna síðan í janúar!!! Það er alveg ótrúlega erfitt að leggja í stæði fyrir utan hjá okkur.. þetta eru svona stæði þar sem maður þarf að bakka inní.. og snjósköflin eru ekki að gera þetta auðveldara!

Vá hvað ég væri til í að skella mér í vikuferð til Grikklands, eða einhversstaðar þar sem ströndin er hvít og sjórinn blár og alltaf skín sólin.. ég bara þrái að komast í sól!!!

Ennn ég ætla að fara að baka franska súkkulaðaköku... erum nefnilega að fá gesti frá íslandi :)

P.s. þetta er sko ekki pakka-kaka sem ég er að fara að baka og það verður mjög spennandi að sjá hvernig hún á eftir að bragðast hjá mér, þetta er nefnilega í fyrsta skipti sem ég baka köku :)

Heyrumst seinna gott fólk :)

föstudagur, mars 03, 2006

NOOOOOOOO...

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n (glatað)
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x ) logið að vini/vinkonu (ekki stór lygi bara svona hvít lygi eins og allir aðrir)
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x)farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmanna
(x) sofnað í vinnunni/skólanum (Í hvíldinni í leikskólanum, þá sofnaði maður stundum ;))
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (ef tjald telst með!)
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n (Gerist oft hjá mér)
(x ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með trélitum
(x) sungið í kariókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki?
(x) hringt símahrekk (hver hefur ekki gert það ???)
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér?
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) fariðí fallhlífastökk...
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Ég var nú fljótari að gera þetta en ég hélt:)

Hvað er annars að frétta af ykkur gott fólk???
Það er allt gott að frétta af mér.. er bara að gera hitt og þetta á daginn, aðalega að knúsa hann Viktor :) Hann er líka orðinn ekkert smá mikill mömmustrákur ;)

Idolið áðan og ég var ekkert alveg nógu sátt með að Nana datt út.. en ég kaus hana ekki þannig að ég get ekki kvartað einsog Páll Óskar sagði í seinasta þætti :)

Þetta verður bara stutt í dag.. Viktor var að vakna og ég ætla að fara að knúsa hann :) híhí

Bæjó