Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

föstudagur, júlí 28, 2006

Fredag

Hello everybody....

Ég fór inná síðuna http://myheritage.com og athugaði hverjum frægum ég líkist. Ég líktist gellunni sem leikur í King Kong og svo kom gellan sem leikur í Charmed ( Miller eitthvað, var með Justin Timb. einu sinni) en svo prófaði ég Veigar og VÁ hvað ég hló mikið... Hann semsagt líktist Alicia Keys, Arnold Swas og Magic Jonson.
Það er kannski lítið hægt að marka þetta því þegar við settum mynd af Viktori þá kom Muhammad Ali :)

Annars er mest lítið að frétta af okkur. Maður er bara að kafna úr hita hérna. Það gengur einhver voða fín hitabylgja og hitinn er svona á bilinu 25-30 á hverjum degi og það dregur ekki fyrir sólina.... jájá ég veit við eigum voða erfitt ;) Viktor sefur bara í bleyjunni á nóttinni og svo er hann bara í samfellu yfir daginn.

Vignir og Silja eru að koma til okkar í heimsókn :) Þau koma 4 ágúst og verða til 9 ágúst. Okkur er farið að hlakka mikið til að fá þau í heimsókn. Það verður gert eitthvað skemmtilegt á hverjum degi :)

Hef annars frá voða litlu að segja ...
Viktor segir : mnmmnn ( Hann er aðeins að fá að pikka inn líka)

Bkv.
Íris og Viktor

5 Comments:

  • At 10:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já Þetta verður geggjað gaman...eins gott að sólin haldist á lofti allan tímann...eða þá að Viktor læri að segja Vigggnnii

     
  • At 3:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er kannski líklegra að sólin haldist á lofti allan tímann heldur en að Viktor segir Vignir ;)
    En ef það verður ekki sól þá er allavegana heitari hérna en heima!

     
  • At 12:11 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ fjölskylda ,já maður öfundar ykkur af þessari sól ,maður man varla hvernig hún er á litinn en hér heima er hún svona eins og flatt ský með rigningar doppum ,held samt að hún sé gul og kringlótt?.Ég for inn á plögið,og ég líktist Shirley Temple.hún sem er með lambakrullur ,en ég var samt sátt því að hún er svon 8 tli 12 ára gömul á þessari mynd

     
  • At 12:52 e.h., Blogger Heiða said…

    haha ég setti nokkrar myndir og fékk nokkrum sinnum Kim Cattrall, Mischa Barton, Madonnu, Scarlett Johanson, Pamelu Anderson, Jessicu Alba og e-a fleiri... fyndið

     
  • At 7:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    fékkstu sendinguna frá mér ?

     

Skrifa ummæli

<< Home