2. júní 2006
Litli sæti prinsinn minn er 6 mánaða í dag!!!
Þessi tími er búinn að vera svo fljótur að líða.. ég man svo vel daginn sem ég remdist í tvo tíma bara til að koma honum út. Blótaði honum fyrir að drífa sig ekki ;) Já ég veit.. þetta var samt alveg ógeðslega vont!! En þegar hann ég sá hann í fyrsta skiptið þá var þessi hræðilegur sársauki gleymdur og ég væri sko alveg til í að gera þetta aftur því þessi einstaklingur er sko alveg þess virði ;)
En núna er maður orðinn 6 mánaða ofurkarl.. Ég get alveg talið upp endalaust hvað hann er byrjaður að gera. En núna í dag er aðal sportið hjá honum göngugrindin og að sitja. Hann labbar útum allt í grindinni, tætir og rífur í allt sem hann sér :) Svo situr hann alveg einn, hann er farinn að vita það ef hann teygir sig í eitthvað þá dettur hann þannig að hann situr bara og er voða montinn af sjálfum sér :)
En þetta var svona smá væmnisblogg ;)
Annars er ein vika í DAG þangað til við komum heim. Ég og Veigar vorum að telja upp hvað við ætluðum að gera og það helsta var að borða á hinum og þessum stöðum :) KFC, American Style, Hjá Dóra, Subway, Nings, Nonna, Rikka Chan og fl. Og svo má ekki gleyma mömmumatnum sem er nátturulega bestastur :) Úfff hvað það verður mikið borðað!!!
Seinasti þátturinn í Prison Break var í gær og hann endaði OF spennandi og við þurfum að bíða þangað til í haust eftir framhaldinu. PÚKÓ.. ég vil fá þá alla í einu!!!
Over&Out
4 Comments:
At 11:44 f.h., Heiða said…
Tíminn er sko fljótur að líða, minn pjakkur er að verða 2 ára :-O
En smá skyndiákvörðun hjá okkur Ómari, við erum að fara til Lúx til bróðir hans 16 - 23.júní... E-r sjens á djammi helgina á undan? 10. eða 11.júní??? :/
At 9:15 f.h., Nafnlaus said…
Hæhæ.. ég kem heim seint á föstudagskvöldið og svo er ég að fara í útskrift og afmæli um kvöldið... :( Þannig að það er brjálað að gera!!! Við skotturnar verðum bara að hittast á virkum degi og fara út að borða, eða gera eitthvað :)
At 11:47 f.h., Heiða said…
Já akkurat verðum að gera það :) Og með alla gríslingana líka ;)
At 12:31 e.h., Nafnlaus said…
Já við verðum að leyfa þeim að hittast, það er svo krúttlegt :)
Skrifa ummæli
<< Home