Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

mánudagur, júlí 17, 2006

"Smile! It confuses people.."

Jáhá... er svarið við spurningunni þinni Fjóla.. Það er frekar mikið bloggleti í gangi ;)
Enda ekki annað hægt þar sem að sólin skín og hitinn frekar mikill.. en ég ætla ekkert að vera að monta mig við ykkur sem búa á Íslandi ;) Ég er ekki svo vond........ Múhaaaaa!!!

Annars er allt mjög gott að frétta af okkur!!! Fórum í mat til Tom og Astrid um daginn. Leyfðum Viktori og Selmu að leika aðeins saman. Svo kíktum við til Stebba og Hörpu í mat á föstudaginn og enduðum í skemmtilegu grillpartýi alveg til klukkan 4 um nóttina. Það var smá útilegu stemmning í gangi. Sátum úti og hlustuðum á íslensk lög ;)

Á laugardaginn fórum við í tívólíið... (í góða veðrinu)

Í gær var Veigar að keppa og ég og Viktor skelltum okkur á leikinn. Stabæk vann 4-0 og skoraði Veigar fyrstu tvö mörkinn :) Hann var síðan valinn maður leiksins:) Algjör snillingur!!!

Ég er búin að panta farið til Spánar fyrir mig og Viktor. Við förum 10 águst og verðum í 2 vikur :) Mamma og pabbi eru með sumarhús á Alicante og ég og Viktor ætlum að skella okkur til þeirra :) Veigar kemst ekki með útaf fótboltanum :(

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag...

Heyrumst!

5 Comments:

  • At 12:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    gott að einhver af okkur fær góða veðrið ;)

     
  • At 10:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Styttist alveg óðum í Spánarferðina okkar og við hérna heima á Íslandi hlökkum meira til að sjá ykkur heldur en Spán :) Það eru aðeins 21 dagur í Spán :D:D En ég keypti smá sumarglaðning handa Viktori sem hann mun geta notið á Spáni, það er nefnilga búið að vera útsala í Next ;)

     
  • At 9:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ohhh okkur er farið að hlakka svo til að hitta ykkur :) Geta slappað af saman í góða veðrinu og haft það nice!!! Aðeins 20 Dagar.... :)

     
  • At 6:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    14 dagar núna

     
  • At 6:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    14 dagar núna

     

Skrifa ummæli

<< Home