Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, mars 22, 2006

Ammæli-ammæli

Veigar "bastastur" átti afmæli í gær þessi elska :) Hann fékk alveg fullt af knúsi og kossum frá okkur Viktori ;)

Það er annars allt og ekkert að gerast þessa dagana.. Veigar er alveg á fullu að æfa, tímabilið byrjar 9. apríl. Ég er bara heima með Viktor á daginn, förum reyndar alltaf í göngutúr á daginn. Snjórinn er að bráðna, sem betur fer og ég er búin að ákveða það að þegar ég get farið að leggja bílnum í stæði þá fer ég að byrja að æfa aftur :) Það er bara búið að vera bíla-problem hérna síðan í janúar!!! Það er alveg ótrúlega erfitt að leggja í stæði fyrir utan hjá okkur.. þetta eru svona stæði þar sem maður þarf að bakka inní.. og snjósköflin eru ekki að gera þetta auðveldara!

Vá hvað ég væri til í að skella mér í vikuferð til Grikklands, eða einhversstaðar þar sem ströndin er hvít og sjórinn blár og alltaf skín sólin.. ég bara þrái að komast í sól!!!

Ennn ég ætla að fara að baka franska súkkulaðaköku... erum nefnilega að fá gesti frá íslandi :)

P.s. þetta er sko ekki pakka-kaka sem ég er að fara að baka og það verður mjög spennandi að sjá hvernig hún á eftir að bragðast hjá mér, þetta er nefnilega í fyrsta skipti sem ég baka köku :)

Heyrumst seinna gott fólk :)

11 Comments:

  • At 3:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ og til hamingju með hann Veigar þinn! :) Hvernig tókst svo kakan?? Við Árnheiður söknum ykkar Viktors.. það var svo notalegt að kíkja með ykkur í göngutúra og spjalla og svonna.. en við hlökkum bara til þegar þið komið næst!

     
  • At 11:21 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég spyr bara eins og Harpa ? Hvernig tókst kakan ?? ;)

     
  • At 1:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    OMG... hún var ekkert smá góð :) Rosa einföld uppskriftin og bara jammí ;)

     
  • At 1:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ohh ég er alveg sammála þér Harpa, ekkert smá gaman að fara í göngutúra saman og spjalla :) Það er ekkert sérlega gaman að fara alltaf ein hérna í Noregi!

     
  • At 2:43 e.h., Blogger Heiða said…

    Til hamingju með Veigar!
    Gott að kakan tókst vel ;) mmm elska franska súkkulaðiköku með rjóma, nammi!

     
  • At 6:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæhæ og til hamingju með kallinn!
    Stebbi átti einmitt afmæli í dag, ég bakaði nú bara pakkaköku...ekki alveg eins myndarleg og þú:)
    Góða skemmtun með gestunum;)
    Kv. Ingibjörg S.

     
  • At 10:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með kallinn, Ingibjörg mín :) Ég reyndar baka alltaf líka bara bakkakökur ;) Ég skal gefa þér þessa uppskrift, hún er ekkert smá einföld og auðveld :)

     
  • At 2:11 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með kallana stelpur... Þið eruð báðar mjög myndarlegar í eldhúsinu ef ég á að segja alveg eins og er....

    En hvenær verður það sem að þið komið báðar til Íslands og við getum farið að blaðra eitthvað sama...

    Bkv, Ellen Ragnars á klakanum....

     
  • At 6:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    til hamingju með kallinn systir og til hamingu með daginn veigar. kyssið litla dúlludúskinn minn frá mér, get ekki beðið eftir að kíkja í heimsókn til ykkar, eilega bara viktors en það verðu líka gaman að sjá ykkur.. hehe

    kv Hansi

     
  • At 10:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæhæ Til hamingju með mennina ykkar Íris og Ingibjörg. En Íris ég vildi bara láta þig vita að ég er á leiðinni til flórída í þrjár vikur hehe :)

     
  • At 4:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ojj, djö.. ertu heppin!!! Ekki slæmt að komast útí hitann og frá þessum kulda :)
    Góða ferð og láttu síðan Vísu skvísu fara meiriháttar krónumegrun og missa alveg fullt af $$$ :)

     

Skrifa ummæli

<< Home