Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

þriðjudagur, desember 20, 2005

Lítill og sætur prins

Svona einsog flestir vita þá eignuðumst ég og Veigar lítinn prins 2. desember og erum við alveg í skýjunum með litla einstaklinginn og gerum lítið annað en að horfa og dáðst af honum :)
Þannig að lítið hefur verið skrifað hérna seinustu daga.
En það er svo brjálað að gera hjá manna þessa dagana... litli kútur, jólin og skírn að maður hefur varla tíma fyrir blogg, þannig að ég ætla að taka mér smá pásu frá þessari síðu, byrja síðan á fullu þegar við erum komin til Noregs. En við höfum opnað heimasíðu á barnalandi og er linkurinn hérna til hliðar undir gullmolinn okkar...

Við viljum óska ykkur Gleðilegra jóla og gott og farsælt komandi ár... takk fyrir það gamla (",)

Kveðja,
Íris, Veigar og Litli kútur

2 Comments:

  • At 3:11 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Fyrsta skipti í nokkur ár held ég sem ég hitti þig ekki á gamlárskvöld !!! EN Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla :D
    knús og kossar
    Fjóla

     
  • At 3:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ Íris:)
    Þetta er Bryndís :) Í dag er 8 Janúar og þú varst að fara til Noregs ;( Ég verð nú eiginlega bara að segja að ÉG SAKNA ÞÍN STRAX:( Ég fór að vola þegar þú fórst og ég var nú ekki sú eina hehe:D En ég ætla bara að segja Til hamingju með LITLA VIKTOR :D
    og gangi þér vel í Noregi

     

Skrifa ummæli

<< Home