Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

föstudagur, nóvember 11, 2005

I´m sooo happy!!!

Aloha people...

Var að fá þessa góða frétt um daginn... Veixi hringir í mig og segist vera að koma heim á fimmtudaginn :) Mér til mikillar gleði... átti ekki von á honum fyrr en 24 nóv, en ég fæ hann viku fyrr... og það eru aðeins 5 dagar þangað til (",)

* og mér hlakkar svo til *
Það er annars allt gott að frétta af mér og bumbukrílinu... Ég hitti fæðingarlæknirinn á mánudaginn og hún sagði að baby-ið væri byrjað að skorða sig :) Blóðþrýstingurinn mældist samt frekar hár þannig að núna fer ég annan hvern dag í skoðun. Hann má ekki hækka meira,
þannig að það er fínt að fara að fá Veigar heim, ef ég yrði nú sett af stað. En ég er búin að vera voða róleg og búin að slappa vel af! Fór meira að segja um daginn og keypti á prjónana og byrjuð að prjóna trefil... byrja á einhverju auðveldu ;)
Bæjó

2 Comments:

  • At 12:04 e.h., Blogger Fjola said…

    Frábært að Veigar er að koma heim :) Taktu því svo rólega stelpa því barnið á ekki að koma í heiminn fyrr en 5 des hí hí hí hí ;)

     
  • At 1:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég skal reyna að halda í mér... lofa samt engu ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home