Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Miðvikudagur

35 vikur

Halló... gott fólk!

Ég fór í gær og labbaði fæðingarganginn með mömmu minni og leið ekkert voða vel :) Það var mjög gott að hafa hana, ég segi það ekki. Hún fór að segja mér hvar ég hafi fæðst... í stofu 1 ;) Það versta við þetta var að ég var yngst og með mömmu minni... allar hinar með mökunum sínum og voða gaman. Þau hafa örugglega haldið, "Gvuð hvað þessi er ung og enginn pabbi" og svo fór ljósmóðirin voða pent í það og sagði pabbinn eða einhver annar...*blikk* :) En mér var svo sem sama! Fjölnir "Mel B" var þarna með kærustunni sinni, hann var með voða góðan húmor og var eiginlega með meiri áhyggjur hvað gerist fyrir pabban ef það líður yfir hann og hvort þeir mega nota hláturgasið :) Það var mjög gaman að fá að sjá allt þetta og ég get ekki annað en viðurkennt það að ég er orðin "meira" spentari eftir að hafa verið þarna, sérstaklega þegar nýbökuð móðir kemur úr fæðingarstofunni með litla ungan sinn... hann var svo lítill og sætur :)

En ég er í svo góðu skapi að ég ákvað að skella inn nýjum bumbumyndum :) Ég setti þær í Bumbumyndir #2

Over&Out

5 Comments:

  • At 5:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Váv, og kemstu ennþá í Diesel gallabuxur. Díses mjóna pjóna....

     
  • At 8:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    HÆ skvís þú ert ekkert smá flott:)
    Kv. Ingibjörg S.

     
  • At 1:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jiiiii! þú ert með ÆÐISLEGA bumbu! guð hvað ég hlakka til að hitta litla ... baby-ið...
    Ji og þú ert bara algjör pæja... hehe tók líka eftir Diesel...

    Hugsaðu vel um þig!
    Silja
    (sem er að versla á baby-ið)

     
  • At 8:00 e.h., Blogger Heiða said…

    Æ sæta :)

    Þú ert nú með svolitla strákabumbu myndi ég segja ;) hehe en þetta kemur allt í ljós.
    Sjáumst vonandi bráðum!!! Langt síðan maður sá þig.

     
  • At 9:49 e.h., Blogger Fjola said…

    ég hlakka ekket lítið til að sjá krílið :D Þú ert eiginlega með svona fullkomna kúlu, lítur ekkert smá vel út :)

     

Skrifa ummæli

<< Home