Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Miðvikudagur...

Hæ hæ...

Þá er loksins allt dótið komið á sinn stað og mín fór í gær og tók upp allar gallabuxurnar sem ég var búin að pakka niður á meðan ég var ólétt... og mér til mikillar gleði þá komst ég í allar buxurnar :) Núna loksins á ég föt... :) og það er svo langt síðan ég notaði þær að ég get eiginlega sagt "ný" föt ;) En næstu daga ætla ég að taka klæðaskápinn minna í gegn... mér finnst ég reyndar alltaf vera að gera það!!!

Í gær fórum við að versla smá handa Viktori og mér... ég fékk brjóstadælu og gjafapúða en Viktor fékk samfellur (",)
Veigar er byrjaður að æfa á fullu og það eru yfirleitt tvær æfingar á dag hjá honum... hann á frí síðan um helgina og við erum að spá í að fara til Svíþjóðar og versla í matinn.

Annars hefur Viktor Páll það alveg mjög fínt... hann er alltaf jafn vær og góður. Hann er byrjaður að brosa meira og reynir alveg á fullu að tjá sig. Hann er samt örugglega kominn með smá leið á okkur... við gerum ekkert annað en að gretta okkur og blaðra við hann og koma með alskonar hljóð :)

Ég fer annars að setja inn myndir af honum á síðuna hans og skrifa eitthvað í vefdagbókina hans...

Kv,
Íris

3 Comments:

  • At 10:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Æí það er svo sárt að fá ekki að sjá Viktor pál og ykkur, en gaman að þið plöggið ,verið dugleg að því KNÚS og KISS Tengdómammaamma

     
  • At 1:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég get ýmundað mér að þú hafir verið ánægð þegar þú komst í öll fötin þín :)
    Allt gott að frétta héðan
    hlakka til að sjá myndir
    knús Fjóla

     
  • At 10:48 e.h., Blogger Heiða said…

    Æðislegar nýju myndirnar :) Hann er svoooo sætur hann Viktor Páll. Frábært að þú kemst í buxurnar ;) hehe
    Kv Heiða

     

Skrifa ummæli

<< Home