Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

sunnudagur, september 25, 2005

Sunnudagur

Helló...

Ég var að skoða forsíðuna á DV um daginn og sá grein sem hljóðaði svona : Íslenski pipparsveinninn fær 40 milj. króna sekt fyrir að kjafta frá!!! Okei hver er þessi piparsveinn og þarf hann að borga allan þennan pening? Maður er soldið forvitinn ;)

Það styttist í að ég komi heim og mér var farið að hlakka frekar til þegar mamma sagði mér að á morgnana sé frost og hún þurfti að skafa af bílnum og það sé hálka á götunni þá fór mér ekkert að hlakka voða mikið til, það er nefnilega ennþá alveg 20 stiga hiti ennþá hérna (",)
En ég þarf að fara heim og þá er alveg eins gott að fara að panta farið...

Mér finnst tíminn ekkert smá fljótur að líða og í dag eru bara 10 vikur í 4.des, eða í settan fæðingardag. Ég og Veigar fréttum af lækni hérna sem flytur inn 3-víddar sónarinn hingað til Noregs og við erum búinn að sjá hvernig það virkar og erum búinn að panta tíma hjá honum. Maður sér andlit barnsins mjög vel og hvort það hafi mikið hár og allt saman... ekkert smá krúttlegt :) En við förum núna á miðvikudaginn og fáum 4 myndir og 2 myndbönd (",)

Veigar er að keppa í dag og það er vonandi að hann breaki leg og skori 3 mörk... mig dreymdi í nótt að hann skoraði 3 mörk, eitt úr víti og hin ekkert smá flott. Núna krosslegg ég bara puttan og vona að hann skori... þeir verða allavega að vinna ;)

Ætla að fara og fá mér eitthvað að borða, við heyrumst seinna.

5 Comments:

  • At 6:05 e.h., Blogger Heiða said…

    Vá ekkert smá gaman að fá að fara í 3víddarsónar!! Vildi að það væri í boði hérna :) Hlakka þvílíkt til að fá þig og sjá kúluna ;)

    Kveðja Heiða

     
  • At 11:45 f.h., Blogger Heiða said…

    Gleymdi að svara spurningunni með piparsveininn ;) Það er ekki ennþá búið að velja piparsveininn (eru 4 þættir þar sem 4 piparsveinar eru kynntir og síðan er 1 valinn í lokin) Það stóð í Dv að ef stelpurnar sem taka þátt í Bachelor þættinum eða aðrir sem koma við, segi frá hver verður valinn fái sá hinn sami 40 milljóna kr sekt... ;S Bróðir hans Ómars er að taka allar myndirnar fyrir þennan þátt, m.a. arinhillumyndirnar HAHA :D

     
  • At 6:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Okey... það verður spennandi að sjá hver verður valinn og hverja þessar stelpur eru :=)

     
  • At 6:37 e.h., Blogger Heiða said…

    Já þetta er dáldið skondið ;) Það er samt búið að sýna flestar stelpurnar sem verða held ég, en ekki búið að tilgreina nákvæmlega hverjar af þeim taka þátt.. Svo veit ég hver verður piparsveinninn ;) held ég, hehe

     
  • At 10:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæhæ Íris mín ég vissi ekki einu sinni að þú værir með bloggsíðu! Ellen var að segja mér frá því áðan.. gaman að geta fylgst með .. vá mér finnst þú bara NÝ ólétt! En svona for the record þá ég er forfallin sudoku spilari!! Fyndið að lesa þetta því mig dreymir LÍKA tölur á nóttunni þar sem ég leysi a.m.k.2-3 þrautir fyrir svefninn!! Maður verður húkt! En hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim so

     

Skrifa ummæli

<< Home