Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Nýjar Myndir :)

Setti loksins inn nýjar myndir í nýtt albúm sem heitir Júlí ´05
Þetta eru myndir frá matarboðinu sem Harpa og Stebbi héldu og fríinu heima á Íslandi!!!
Svo setti ég líka inn nokkrar bumbumyndir inná Sónar- og Bumbumyndir!!!
Læt fleiri myndir á morgun því að Veigar getur ekki beðið lengur eftir að horfa á 24 :)

Og svona ein stór frétt í lokin... Magga og Garðar voru að eignast Lítinn Prins í dag, rétt fyrir tólf. Hann var 14,5 merkur og 52 cm. Lítill ljóshærður og með krullur... bara sætt ;) Hlakka rosa til að sjá hann, þótt það verður kannski soldið langt þangað til, en Veigar fær að hitta hann aðeins fyrr. Hann verður bara að taka fullt af myndum fyrir mig.
Bara innilega til hamingju með litla prinsinn, Magga og Garðar.

En þolinmæðin hans Veigars er að renna út þannig að ég ætla að fara að horfa á 24.

Bæjó

6 Comments:

  • At 11:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gaman að skoða myndirnar :) Þú ert nú orðin myndarlega ;) Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim :)
    miss´ya

     
  • At 1:46 e.h., Blogger Heiða said…

    Þú ert ekkert smá myndarleg og sæt með svona kúlu :) Fer þér rosalega vel.
    Heyrumst :)

     
  • At 10:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    bið að heilsa

     
  • At 12:04 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Stelpur...Afhverju get ég ekki commentað á síðunni okkar??? Að springa úr pirring :(

     
  • At 10:11 f.h., Blogger Heiða said…

    Æ ég þurfti að breyta þessu svo það kæmu ekki auglýsingar. Núna skrifarðu nafnið þitt og lykilorð eins og venjulega og svo ferðu aðeins neðar og þá þarftu að skrifa nokkra stafi sem eru gefnir upp... prófaðu það, en ef það virkar ekki þá skal ég bara taka þetta burt og við verðum bara að leiða þessar auglýsingar hjá okkur ;)

     
  • At 2:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert ekkert smá sæt með svona kúlu. :) Hlakka til að hitta þig í sept-okt. Farðu svo bara ofsalega vel með þig.
    Knús.

     

Skrifa ummæli

<< Home