Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Fimmtudagurinn 21. júlí

Hæ hæ...
Fyrir 4 dögum þá komum við hingað til landsins og það er búið að vera brjálað að gera, en samt rosa gaman. Við erum búinn að vera ekkert smá heppin með veður... fórum til systir Gunnu í gær og sátum útá palli hjá henni í ca. 5 tíma í sólbaði (alveg brjálað að gera ;). Það var ekkert smá gaman. Fórum í allskonar leiki þarna. Síðan komum við heim og grilluðum úta palli.
Síðan í dag klukkan þrjú er ég að fara í meðgöngunudd í 80 mínútur... Veigar var svo æðislegur og kom mér alveg á óvart og gaf mér nuddið. Mig hlakkar ekkert smá til. Þetta er í Nordica Spa, ég fæ slopp og fer í pottinn og fæ axlanudd þar og svo 80 mín. nudd. Ætli ég verði ekki bara ný manneskja eftir nuddið ;)
En í kvöld fer ég síðan að hitta gellurnar mínar í saumaklúbbnum. Mér hlakkar ekkert smá til að sjá þær. Ætli það verði sitið í allt kvöld og kjaftað. Veigar er að fara í póker með strákunum þannig að það er nóg að gera.
Síðan er helgin framundan og ekkert hefur verið planað. Ætli ég taki því ekki bara rólega. Ég veit að Veigar ætlar að djamma feitt... og ætli ég hafi ekkert gert það sama ef ég væri ekki með lítið baby í mallanum ;)
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag... hafi það gott um helgina.
Kv, Íris

4 Comments:

  • At 7:06 e.h., Blogger Heiða said…

    Ohh æðislegur að gefa þér nudd :) Væri ég til!
    Hlakka til að sjá þig á eftir :)

     
  • At 9:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já hann er æðislegur þessi kærasti sem ég á ;)
    En það var rosa gaman í saumó í gær. Takk bara fyrir mig. Verðum síðan að fara útað borða í næstu viku.

     
  • At 5:45 e.h., Blogger Heiða said…

    Bara rosa gaman að sjá þig :) Já við verðum að fara útað borða og svona í næstu viku ;) Hlakka til!

     
  • At 12:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ, er búin að vera að reyna að ná í þíg í dag, fór sko í útileigu með Gumma, Tinnu og Arnóri bara í eina nótt og keyrðum svo í sumarbústaðinn hjá Tinnu og vorum í sólbaði langt fram á kvöld á meðan að Gummi og Arnór fóru í Golf á alveg geggjuðum golfvelli í Grímsnesinu.... En hringdu endilega

     

Skrifa ummæli

<< Home