Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

föstudagur, júlí 01, 2005

Útsala Útsala

Jæja vorum að koma heim alveg fullhlaðnar af fötum :) Útsölur að byrja og allt bara á 50% afslætti. Ég keypti bara peysur og boli... ógó sætt allt saman. Ég á erfitt með finna mér buxur, ég er ennþá að reyna að þrjóskast að koma mér í nýjustu gallabuxurnar og er ekki alveg að sætta mig við að fara að klæða mig í jogging og strets :( Geng ennþá í gallabuxunum mínum en set bara teygju í hnappana... :)
Gunna er alveg að missa sig í kaupunum... sem er bara fínt. Veigar flýtti sér út úr búðinni áðan... Ég, Gunna og Bibba vorum allar að máta alveg eins úlpur... Voru ekkert smá flottar, Gunna og Binna keyptu sér alveg eins en ég fékk enga... enda gæti ég notað hana kannski í einn mánuð... en hver þarf á úlpu að halda í þessu veðri. Ekki nóg með það að þær keyptu sér alveg eins úlpu... heldur líka buxur og bol. Þær þurfa að hringja í hvor aðra þegar þær fara útúr húsi :)
Í kvöld verður líklegast bara slappað af og borðað góðan mat... erum að elda hrygg að heiman og allt tilheyrandi með honum... jammí

En ég ætla að fara klára að horfa á Constantine... sofnaði yfir henni í gær.
Heyrumst seina :)

2 Comments:

  • At 4:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú kaupir þér bara helling af fötum þegar þú ert búin að eiga ;)bumbumyndin af þér er æði :) hlakka til að sjá þig þegar þú kemur :) var með pínu partý i gær og ég vildi að þú hefðir verið hérna með okkur. Farðu vel með þig
    miss´ya
    Fjola

     
  • At 9:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Æj ég hefði sko alveg verið til í smá partý. En hey bara 2 vikur þangað til ég kem heim :)

     

Skrifa ummæli

<< Home