Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, júní 22, 2005

Bloggleti í góða veðrinu...

Halló Halló
Það má alveg segja að ég er ekki búin að vera sérlega dugleg við að blogga uppá síðkastið. Það er alveg nógu mikið að gera þegar maður er með gest hjá sér, sérstaklega þegar gesturinn er ungur og með alveg nóga orku í sér og vill helst vera á fullu allan daginn. Ég reyni að þreyta hana með göngunum mínum og það dugar yfirleitt alltaf. Við erum búnar að vera ekkert smá duglegar og bara löbbum allt.
Í dag var vaknað snemma og farið beint uppí sundlaugagarðinn þar sem við láum flatmaga alveg til fimm. Veigar joinaði okkur seinna og þá fékk Bibba smá útrás með honum... ekki get ég verið að hoppa af stökkbrettunum. En þetta var alveg ljómandi... ógó gaman. Við löbbuðum síðan heim og komum við í búðinni og keyptum bara pulsur og settum á grillið og svo var ég að enda við að borða grillaðan banana með súkkulaði og rjóma... nammmm
Í kvöld eru síðan tveir seinustu þættir í Lost og við erum orðinn voða spennt. Alltof góðir þættir :)
Annars er tveir dagar í tengdó... þannig að það verður ekki tekið því rólega fyrr en 3 júlí :) Þegar allir gestirnir er farnir. En það er ekkert nema gaman að hafa gesti hjá sér. Allir velkomnir ;)

Adios Amigos

6 Comments:

  • At 2:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja, hvenær fæ ég svo að sjá myndir frá þér af bumbunni og svona

     
  • At 5:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég ætla að skella inn myndum á morgun... þegar ég er búin í sónarnum :)

     
  • At 11:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já ok, flott er, hlakka ekkert smá til, en ætlarðu að fá að vita kynið?

    Kv, Frá Íslandi

     
  • At 1:47 e.h., Blogger Heiða said…

    Hlakka til að sjá myndir og fá fréttir af sónarnum :)

     
  • At 4:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já... við ætlum að fá að vita kynið :) En engin annar fær að vita ;)

     
  • At 1:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ, hvenær ætlarðu að setja inn myndir ég bíð og bíð, ;(

     

Skrifa ummæli

<< Home