Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, september 14, 2005

Miðvikudagur

Hæ hæ...

Whatzzzz up? Allt voða gott að frétta af okkur! Erum bara búin að vera gera hitt og þetta og mest ekki neitt seinustu daga... Veigar búinn að keppa tvo leiki sem enduðu báðir 1-1... Einn úti leikur þar sem hann þurfti að sofa eina nótt og svo var hann að keppa núna í dag, heimaleikur.
Harpa fékk einhverja voða magakveisu núna á mánudaginn þannig að ég þurfti að skutla Stebba á æfingu og fara síðan að sækja systir Stebba uppá flugvöll og sjá um þann yngri á meðan. Það var voða gaman :)
Í gær þá fengum við Veigar okkur göngutúr niðrá Aker Brygge í rigningunni með regnhlífar :) Okkur fannst voða gaman að labba með þær, enda þekkist það ekki að vera með reglhlíf á Íslandi. En það eru allir með þær hérna og það er sko cool ;)

Ég skellti nokkrum myndum inná sónar-og bumbumyndir :) Enjoy og ég er hætt í dag. Meistaradeildin að byrja og ég ætla að horfa á Man. United vinna ;)
Bæbæ

7 Comments:

  • At 2:26 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Váts hvað bumban er orðin svakalega myndarleg... nær út fyrir brjóstin meira að segja... ;) Svo gaman að fylgjast með... hlakkar svo til að sjá krílið... Hei verðiðið ekki með svona baby síðu?
    Kveðja
    Silja

     
  • At 11:45 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Æ, hvað þú ert orðin mikið krútt. Það fer þér rosa vel að vera svona ólétt. Það styttist í þetta! :)
    Knús,
    Harpa.

     
  • At 3:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú lítur glæsilega út :)
    Hlakka til að fá þig heim :)
    knús
    Fjóla

     
  • At 10:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá hvað bumban er að stækka hratt núna! Segi eins og Harpa þetta fer þér ekkert smá vel! Ættir bara alltaf að vera ólétt :)
    Við í Ársölum bíðum spennt eftir litla krílinu!
    Kv, Sigga

     
  • At 11:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæ hæ það er gaman að sjá hvað þetta gengur allt vel hjá ykkur. Ég var að skoða nýju myndirnar og gat ekki komist hjá því að sjá hvort kynið þetta er. Þetta er snild og það er einmitt eins og ég hafði sagt allan tíman. Ég vill samt ekkert vera að segja það hérna enda eruð þið að halda þessu leyndu er það ekki?
    Bið að heilsa

     
  • At 4:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert ekkert smá felleg svona ólétt, það sést sko vel á hverju einasta brosi á þessum myndum. Hlakka ekkert smá til að sjá þig þegar að þú kemur í okt. Bless á meðan....

    ps. gaman að spjalla við þig um daginn ;)

     
  • At 1:45 e.h., Blogger Heiða said…

    Þú lítur alveg hrikalega vel út Íris ;) Á ekki að fara að gera síðu fyrir litla barnið? Hlakka til að fá þig heim, stutt í það!!! :)
    Kveðja
    Heiða

     

Skrifa ummæli

<< Home