Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

mánudagur, apríl 18, 2005

Veigar á skotskónum :)

Sælt verið fólkið... ég ætla að hafa þetta stutt í dag... er alveg að drepast úr hungri og ætla að fara að elda blómkálssúpu... jammí.
Leikur númer tvö í gær og Stabæk sigraði 2-0... Veigar skoraði fyrra markið, húrra fyrir honum :) Hann var valinn AFTUR maður leiksins og fékk hæðstu einkunina í VG og Dagbladet...
Veðrið fer alltaf skánandi og á föstudaginn þá skelltum við okkur og Stebbi í garðinn í frísbí og badminton og í 17 stiga hita... varð að fylgja ;) Stebbi kom síðan til okkar um kvöldið og horfðum við á Idolið. Á laugardaginn var bara slappað af og við buðum Stebba aftur til okkar í mat... Við vitum alveg hvað það er leiðinlegt að hanga svona einn hérna þannig að við erum dugleg að bjóða honum í mat og svona... hver nennir líka að elda einn? Allavega ekki ég.
Dagurinn er farinn að lengjast og það dimmir ekki fyrr en klukkan hálf tíu á kvöldin...
Uhhuuummm... veit ekki hverju fleiru ég get logið að ykkur... þannig ég segi bara bless í bili.

7 Comments:

  • At 7:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    17 stigta hiti ???? þú varst að djóka er það ekki ?
    búið að vera ömurlegt veður hérna :(
    heyri í þér......

     
  • At 10:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ sé að það er nóg að gera hjá þér að horfa á Idolið:) Gaman að sjá að það gengur allt rosa vel hjá ykkur, en á ekkert að fara að kíkja í heimsókn á klakann? Kv. Ingibjörg S

     
  • At 10:23 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ekki að djóka... 17 stiga hiti :)
    Það var samt ekki búið að spá því þannig að það kom skemmtilega á óvart. Ég er að spá að koma í heimsókn í júlí :)

     
  • At 1:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    VÁ 17 stiga hiti. Heyrðu ég er að koma til þín.. NÚNA ;) he he
    Hlakka til að sjá þig í Júlí :D

     
  • At 2:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ Hæ, var ég búin að segja þér að ég er að fara að flytja til Osló, hlakka ekkert smá til eftir sirka mánuð (wake up)

     
  • At 8:03 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Var þetta comment um að ég eigi að vera betri bloggari eða ertu virkilrga að flytja ;)

     
  • At 1:09 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er spurning? hmmm, en nei ég er ekki að flytja ég er bara svona að stríða þér Íris mín, alltaf samt gaman að lesa bloggið þitt.

     

Skrifa ummæli

<< Home