Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

sunnudagur, mars 13, 2005

Nýjar Myndir Komnar :)

Hallo Hallo... já ég er loksins búin að setja inn nýjar myndir og alveg fullt af þeim, þannig endilega kíkið á þær :) Farið bara inná albúm og svo allsstaðar þar sem stendur NEW (svona gult merki)eru nýju myndirnar... þær eru líka á page 2 :) Svona aðeins fyrir þá sem eru ekki voða miklir tölvusnillingar ;)
En Veigar kom heim í gær, brúnn og sætur :) Var voða gaman hjá honum. Ef ég hefði vitað að hann kæmi brúnn heim þá hefði ég skellt mér í ljós... Ekki alveg að passa að hann sé brúnni en ég... ef þið vitið hvað meina!!!
En í dag verður bara slappað af... Bara svona típiskur sunnudagur... allt lokað og lítið hægt að gera. Var voða myndarleg áðan og bakkaði pönnslur... það er reyndar bara það eina sem ég kann að baka. Var líka að komast að því að við eigum ekkert bökunardót!
En ég ætla að hafa þetta stutt í dag, vildi bara láta ykkur vita af nýju myndunum :)
Heyrumst

1 Comments:

  • At 10:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ok eftir að vera búin að skoða myndirnar þá er ég komin að þeirri niðurstöðu að ég er hætt að drekka og hætt að dansa og syngja á almannafæri !!! og kannski bara forða mér þegar myndavélar koma á loft !!!! :)

    miss ´ya
    Fjola

     

Skrifa ummæli

<< Home