Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Heimsókn :)

Við erum að fá heimsókn núna föstudaginn... Gunna tengdó fékk gott tilboð til Osló og ákvað að skella sér til okkar. Þetta verður nú bara stutt heimsókn en hana langaði svo að sjá Veigar spila að hún varð að koma... Hún fer aftur á sunnudaginn þannig að hver dagur verður vel skipulagður... Bara beint úr vélinni og strax að versla ;) En hún ætlar að koma aftur í júlí og vera þá hjá okkur aðeins lengur.
Það lítur út fyrir að Vignir komi ekki til okkar á mánudaginn, hann fór víst einhvernveginn að því að verða íslandsmeistari í júdó þannig að hann þarf að keppa á norðulandamótinu sem er á sama tíma og hann verður hérna... en hann ætlar að reyna að koma til okkar aðeins seinna.
En ég er komin með smá óskalista sem ég vil fá frá Íslandi, númer 1, 2 og 3 er flatkökur og hangikjöt (",)
Og ég get heldur ekki beðið eftir að komast í klippingu... Það verður sko klippt mig STRAX, mér líður einsog Argitætlu, en hún vildi ekki greiða á sér hárið né þvo og það fór að vaxa gras úr hárinu hennar og kóngulær bjuggu þar... hehe. Ég greiði mér nú samt og þvæ mér, tók bara svona til orða.
Hey fyrir ykkur sem vantar vinnu þá er David og Viktoria að auglýsa eftir Nanny, hún fær 60.000 á viku og pottþétt eitthvað frá David Beckhami, þau eru að auglýsa þetta á netinu :) Hehe
Kveð í bili... Over&Out

3 Comments:

  • At 8:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hvar getur maður sótt um ?????

     
  • At 9:03 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    www.nannyjob.co.uk
    Endilega sæktu um Fjóla mín. Ég kem þá pottþétt í heimsókn ;)

     
  • At 4:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæhæ, og gaman að heyra hvað það gengur vel hjá ykkur, vonandi að maður skelli sér út í sumar eins og ég var búinn að lofa Veigari, en hvernig er það eruð þið ekki með númer þarna úti sem er hægt að ná í ykkur???

    Kv
    Gummi Haff

     

Skrifa ummæli

<< Home