Guðrún Íris

Hæ hæ... Ég heiti Guðrún Íris Pálsdóttir og er fædd 11.ágúst 1980. Ég kem frá Garðabæ en hef búið í Oslo seinustu 3 árin og mun ég líklega búa hérna næstu 3 árin líka :) Ég bý með kærastanum mínum honum Veigari og litla stráknum okkar honum Viktori Páli.

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

10 ágúst

Hæ Hæ... Whats up!!! Allt gott að frétta héðan... eins og alltaf :) Veðrið hefur verið alveg frábært, 33 stiga hiti og sól. Ég get sagt ykkur það að það hefur verið ólíft hérna! Þegar það er svona gott veður þá verður maður að vera nálægt vatni, þannig að við höfum verið að fara mikið niðrá strönd til að geta kælt okkur niður... Á laugardaginn fórum við síðan uppá vatnið í Mjondalen þar sem við bjuggum seinast og það var alveg snilld... geðveikt gama... við keyptum gúmíbát og árar og fórum að sigla... ógeðslega gaman... reyni að fara að setja þessar blessaðar myndir inn fljótlega, er komin með svo margar myndir :) Svo fór ég með Önnu að versla á mánudaginn og svo um kvöldið fórum við í bíó á I, Robot og hún var bara frekar góð!!! Svo í dag þá kom hann Gylfi til okkar í heimsókn og við skelltum okkur bara uppá vatnið og það var bara geðveikt gaman... svo fórum við heim og ég eldaði Taco fyrir liðið... þetta var bara mjög skemmtilegur dagur!!! En ég er bara engan vegin í stuði til að skrifa, get varla hugsað hvað ég á að skrifa... klukkan er eitt og hitinn er 26 og ég er að svitna við að skrifa... verð bara að fara... heyrumst seinna!!!

2 Comments:

  • At 3:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæ hæ !!! það er 11 ágúst og ég vildi bara segja til hamingju með daginn :) talaði reyndar við þig áðan en ákvað að skrifa það hér líka :) kossar og knús Fjóla

     
  • At 6:00 e.h., Blogger Íris said…

    Takk aftur Fjóla mín :)

     

Skrifa ummæli

<< Home